Endurmat/Þorskur

 

Kæru foreldrar.
Vinnan með Þorskin hefur verið mjög skemmtileg. Hugarkortið orðið fullt af myndum og börnin ótrúlega áhugasöm og allir pabbar eru úti á sjó að veiða þorsk bæði í net og á veiðistöng að þeirra sögn. Við erum búin að fá nokkrum sinnum ljúffengan fisk hjá Ellu bæði steiktan,bakaðan og soðinn og er hann alltaf jafn góður eins og allur Ellumatur. Ferðin út í fiskbúð var frábær, þar var tekið vel á móti okkur og starfsmaðurinn í fiskbúðinni var mjög liðlegur og sýndi okkur alls konar fiska og var duglegur að spjalla og segja okkur frá. Í síðari ferðinni keyptum við óflakaðan þorsk til að skoða nánar í leikskólanum. það var ótrúlega gaman að fylgjast með börnunum þegar við flökuðum hann og rannsökuðum nánar,  sumir héldu fyrir nefið og fannst lyktin vond en aðrir voru til í að koma við og jafnvel halda á honum .(myndir á heimasíðu) Eins og þið sjáið þá hafa þetta verið viðburðaríkar og fræðandi vikur , vonandi hefur þetta skilað sér að einhverju leiti heim til ykkar og gefið tilefni til samræðna.
                                                                                                            Með bestu kveðju Bláadeild