Endurmat/ Krossfiskur

 

Sæl og blessuð.
Hópastarfið þar sem við unnum með krossfiskinn gekk mjög vel. Hugarkortið hefur mikið verið í umferð og börnin mjög upptekin af skemmtilegum myndum einnig hafa þau verið dugleg að segja frá  allskomnar sögum sem tengjast krossfisknum og börnin lent í allskonar skemmtilegum ævintýrum. Myndabækurnar hafa verið skoðaðar í þaula og vakið mikla hrifningu vegna þess hvað krossfiskurinn er litaglaður og með marga anga....fætur.
Ferðin út í Grandaskóla vakti mikla lukku, þau eru öll tilbúin að byrja í grunnskóla alla vega hlakkar þeim mikið til, sjóbúrið fannst þeim líka áhugavert og eigum við eftir að fara aðra ferð þangað með vorinu. Mbk. Bláadeild