-
Hvatningaverðlaun 2012 og tilnefning til foreldraverðlauna Heimilis og skóla 2012
-
Sumarkveðja frá Gullborg
-
Barnamenningahátíð 23-28 apríl
-
Vori fagnað í Gullborg
Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn !
Kveðja frá öllum í Gullborg
BARNAMENNINGARHÁTÍÐ
Í REYKJAVÍK 23.-28. apríl 2013
Barnamenningarhátíð verður haldin í Reykjavík dagana 23.-28. apríl 2013. Þar verður að finna fjölda viðburða sem börn og fullorðnir, í fylgd með börnum, geta sótt sér að kostnaðarlausu út um alla borg ! Börn af Regnbogadeild tóku þátt í opnunarhátíðinni í dag í Hörpu. Börnin af Grænudeild komu og horfðu á.
Dagskrá Barnamenningarhátíðar er nú farin að taka á sig afar skemmtilega mynd og þegar hafa borist viðburðir frá menningar- og listastofnunum, listhópum, listamönnum, félagasamtökum, listaskólum, grunnskólum, leikskólum og frístundaheimilum. sjá slóð www.barnamenningahatid.is
Í gær kom pabbabandið ásamt ungum fyrrverandi Gullborgurum klæddir KR treyjum og spilaðiu og söngu fyrir börn og starfsmenn í salnum. Spiluðu þeir leikskólalög og vinsæl lög sem börnin sungu af mikilli innlifun og gleði.
Á morgun föstudaginn 19. apríl kl. 9.30 í salnum mun Bernd Ogrodnik brúðuleiklistarmaður vera með hina bráðskemmtilegu og gullfallegu sýningu sína, Pétur og úlfinn. Sýningin, Pétur og úlfurinn, er byggð á hinni óviðjafnanlegu sögu og tónverki, ,,Pétur og úlfurinn" eftir Sergei Prokofiev. Sýningin er í boði foreldra í Gullborg.
Á mánudaginn 22. apríl er foreldrum, ömmum og öfum boðið í morgunkaffi í Gullborg. Tilefnið er Alþjóðadagur jarðarinnar sem er orðin fastur liður af okkar leikskólamenningu. Börn og starfsmenn hafa haldið vorhátið tengt þessum alþjóða degi jarðarinnar með mismunandi þema tengt fjölmenningu og náttúru. Í ár er heiti þemavinnunar „nærumhverfið okkar „ og tengist hún sjálfsmynd barnanna. Börnin hafa verið að læra um nærumhverfi leikskólans og hvar þau eiga heima og einnig merkar byggingar sem eru í vesturbænum og tengjast börnunum. Einnig hafa þau lært umhverfismennt og um endurvinnslu. Unnið verkefni og hengt upp til sýningar í sal leikskólans og inn á öllum deildum, Guludeild, Bláudeild, Rauðudeild, Grænudeild og Regnbogadeild. Markmið okkar er að stefna að Grænfánanum, læra meira að flokka rusl og endurvinna verðlaust efni. Hvetjum við ykkur að koma og skoða verk barnanna á öllum deildum og fræðast um hvernig þau upplífa sig í nærumhverfinu sínu.Sýningin stendur frá 22. apríl til 26. apríl frá kl. 10.00-11.00 og frá 14.00-15.00.



